Þú ert að skoða: Forsíða Progress Spurningar til Progress Spurningar um vörur Hvaða vörur á ég að byrja að taka

Progress.is - AST fæðubótarefni - MAX-OT

Karfan þín

Karfan þín er tóm (Hún hefur verið tæmd eða of langur tími er liðinn.)

Create PDF Write e-mail Prenta út

Hvaða vörur á ég að byrja að taka

Date added:
Miðvikudagur, 16. September 2009
Hits:
695

Answer

Spurning: Hvaða vörur á ég að byrja að taka?

Svar:
Prótein-glútamín-kreatín, þessi þrjú efni eru alveg það fyrsta sem er mælt með af sennilega öllum einkaþjálfurum og reynsluboltum. Ef þú ætlar að missa fitu þarftu ekkert endilega að taka brennslutöflur sem slíkar. Margir nefna CLA sem góðan kost ef þú ert að æfa mikið, þá ertu að gefa líkamanum fitusýrur sem hann þarf og það auðveldar honum brennsluna.
Viljir þú fá brennslutöflur eru "Thermogenic" töflur helsta byltingin. Hydroxycut og slíkt eru töflur hannaðar í kringum efedrín. Svo var það bannað og eina sem þeir hafa gert er að kippa því út og setja inn eitthvað sull af öðrum orkuefnum í staðin. AST (og fleiri vissulega) bjóða upp á vörur sem eru hannaðar með öllum þeim virku efnum sem í töflunum.
Okkar helstu brennslutöflur eru Metabolism Perscribtion RX. Þeir kalla þær "Pro-Thermogenic" og eru byggðar á mjög nýlegri vöruþróun. Helsti orkugjafinn og andoxunarefni í blöndunni er sennilega EGCG, sem er eingangrað virkt efni úr grænu tei. Þessi Pro-Therm blanda inniheldur blöndu af efnum sem eiga að draga úr sætuefnaþörf, auka orku og bæta einbeitingu. Í þessari blöndu eru amínósýrur sem eru líkamanum nauðsynlegar en eru þó ekki framleiddar í líkamanum og þurfa að koma úr mataræði eða fæðubótaefnum. Sem einangrað efni er virknin mun skilvirkari og áhrifameiri. Auk þess er B6 vítamín í MPRX sem hjálpar til við alla úrvinnslu á hinum efnunum og er með ótal kosti, (m.a. stuðlar að framleiðslu líkamans á seratónín og dópamín). Þó þarftu að passa að taka ekki meira inn en hámarks ráðlagðan skammt af MPRX til að ofskammt þér ekki B6, sem gæti haft einhver neikvæð áhrif. Skortur á B6 vítamíni hefur þó sýnt sig skv rannsóknum að geti valdið hausverkjum, krampaköstum, þunglyndi og ýmsum hrörnunareinkennum.

Við erum líka með ýmsa orkugjafa fyrir æfingar, t.d. NRG-X, Dymetatrine Xtreme og Anabolic Rush. Svo mæli ég hiklaust með MultiPro32X vítamínunum hjá okkur og DGC kolvetnablöndunni. Láttu mig endilega vita ef þú hefur einhverjar spurningar um fleiri vörur, ég hef bara gaman af því að svara svona spurningum :)

Flokkur