Spurning:
Ég er 37 ára kk sem er búinn að vera undanfarin tvö til þrjú ár að taka mig í gegn og gengur bara vel. Nú langar mig hinsvegar að „byggja upp byssurnar“ og var þá bent á ykkar dót. Þar sem ég hef lítið tekið inn af slíkum efnum er ég svolítið týndur í því hvað ég á að innbyrða. Er einhver séns á að fá frá ykkur upplýsingar um hvað ég á að taka?
Ég er 190 cm á hæð og ca. 94 kíló.
Svar:
Takk fyrir fyrirspurnina, það er alltaf jafn ánægjulegt að heyra af meðmælunum með AST vörunum.
Fyrst myndi ég ráðleggja þér að byrja strax á MAX-OT þjálfunarprógraminu. Þar færðu allar upplýsingar um æfingar, fæðubótarefni, hugarfar og næringu til að ná hámarks árangri í vöðvauppbyggingu. Það eru nokkur atriði sem þeir eiga eftir að uppfæra í textanum og þeir eru enn að vinna í að setja inn æfingarnar á heimasíðuna eftir að þeir uppfærðu kerfið hjá sér, en allar fyrirspurnir um æfingar og slíkt máttu hiklaust senda á okkur.
Það sem hefur virkað best fyrir mig persónulega, er að nota aðferðafræðina í MAX-OT í bland við að taka inn AST fæðubótaefni, en ég finn gríðarlega mikinn mun á AST og öðrum vörum sem ég hef prófað í gegnum árin (enda ástæðan fyrir því að við tókum umboðið). Í grunninn myndi ég taka inn VP2 prótein, GL-3 Glútamín og Micronized Creatine. Þá er ég að taka glútamín, eina teskeið tvisvar á dag og kreatín, tvær teskeiðar tvisvar á dag. VP2 próteinið tek ég undantekningarlaust eftir æfingar og yfirleitt blanda ég kreatíninu við það og oft DGC kolvetnablöndunni líka til að ná fyrr upp blóðsykrinum. VP2 strax eftir æfingu er það besta sem þú getur gert og þú munt finna mun á árangrinum bara með því.
Þegar ég hef verið sérstaklega að byggja mig upp, þá hef ég bætt við Muscle XGF í mataræðið. Þá hef ég verið að fá mér góða og próteinríka máltíð ca 30-60 mínútum eftir æfingu eða Muscle XGF, öðrum stundum fékk ég mér Muscle XGF fyrir svefn eða í morgunmat ..helst bara þannig að ég fengi mér ca einn skammt á dag sem tryggir það að ég fái góðan dass af góðri próteinblöndu, réttu amonísýrurnar sem tryggja vöðvauppbyggingu, nægt glútamín og flotta blöndu af uppbyggingarefnum.
Annað sem mér finnst hjálpa mér mjög mikið með mataræðið, er að eiga alltaf Vyo-Pro próteinstangir. Þá reyni ég alltaf að hafa amk eina stöng í æfingatöskunni og eina í bílnum. Þar sem ég vinn vinnu þar sem ég er mikið á flakki og kemst ekki alltaf í mat á réttum tíma, þá er það mjög mikilvægt fyrir mig að hafa alltaf eitthvað próteinríkt og hollt til að grípa í og þá er Vyo-Pro hin fullkomna millimáltíð. Yfirleitt narta ég það rólega niður og borða kannski ekki nema hálft bar í einu, enda mjög saðsamt og mettandi, gríðarlega bragðgott, án óþarfaefna og með öllu sykurlaust.
Ég get sagt þér frábæra hluti um allar þær vörur sem ég hef prófað frá AST. Þeir hafa alltaf verið leiðandi og eru ósjaldan fyrstir á markað með vörur sem aðrir fylgja svo eftir með. Þeir voru fyrstir með mysuprótein af öllum fæðubótarefna-framleiðendum og eru einnig oft fyrstir að taka vörur út sem þeim finnst ekki virka sem skyldi.
Vonandi koma þessar upplýsingar þér að gagni. Ég vill þó sérstaklega taka fram að ég er ekki einkaþjálfari og ekki næringarfræðingur. Nánast öll mín grunnþekking er byggð á Max OT textanum og svo hef ég verið iðinn við að lesa mig til og auðvitað prófa mig áfram sjálfur. Ég hvet þig til að velja þér upplýsingar úr einni átt og prófa þá aðferð algjörlega, þá sérðu hvort sú aðferð virkar fyrir alvöru eða ekki, byrjaðu því endilega á Max OT og ekki missa úr einni viku þessar 12 vikur.
Ómar
Progress.is