Þú ert að skoða: Forsíða Progress Fréttir

Progress.is - AST fæðubótarefni - MAX-OT

Karfan þín

Karfan þín er tóm (Hún hefur verið tæmd eða of langur tími er liðinn.)

Fréttir

Nýtt - DryHands gripgel

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Dry HandsHvað eiga kraftlyftingar, klifur, körfubolti, tennis, fimleikar, golf og keila sameiginlegt? Jú, alls staðar skiptir miklu máli að hafa gott og stöðugt grip og sveittir lófar geta dregið verulega úr árangri.  Magnesíum (kalk) hefur löngum verið notað í lyftingum, klifri og fimleikum til að fá betra grip í æfingum en sóðaskapur og ryk sem fer í öndunarfærin hafa alltaf verið leiðinlegur fylgikvilli.

Nú hefur Progress.is hafið innflutning og sölu á frábærri nýjung, DRY HANDS gripgeli, sem ekki aðeins heldur lófunum þurrum og lausum við svita, heldur er einnig mjög meðfærilegt, laust við sóðaskap, auðvelt í notkun og hefur sérlega góða viðloðun. DRY HANDS er heldur ekki klístrað og makast ekki.

Sífellt fleiri líkamsræktarstöðvar banna notkun hefðbundins magnesíums vegna sóðaskaps sem erfitt er að þrífa.  Það vita þó allir sem hafa reynt, að gott grip skiptir gríðarlega miklu máli þegar miklar þyngdir eru meðhöndlaðar eða þegar verið er að æfa með ketilbjöllum eða bara gera upphífingar.  Æfingahanskar geta hjálpað til en gera þó yfirleitt ekki sama gagn og þurrir lófar með góðu gripi (fyrir utan hvað það lúkkar betur að vera á holdinu).

Prófaðu til að sannfærast! Fyrsta sending af vörunni er nánast uppseld hér á progress.is en ný sending er nú á leiðinni og verður þá fáanleg í Intersport í Lindunum og fleiri verslunum fljótlega í kjölfarið.

Síðast uppfært ( Föstudagur, 27. Ágúst 2010 15:14 )
 

AST vörurnar fást í Intersport

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

astintersport

Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að Intersport mun nú bjóða viðskiptavinum sínum hágæða fæðubótarefnin frá AST. Nú þegar er búið að stilla upp vörunum í verslun Intersport í Lindunum, en í næstu viku mun svo Intersport, Bíldshöfða bætast í hópinn og svo aðrar verslanir seinna meir.

Intersport er með stærstu íþróttavöruverslanir landsins og tilheyrir stærstu keðju íþróttavöruverslanna í Evrópu.

Þetta er stór áfangi fyrir viðskiptavini Progress því nú er aðgengi að vörunum mun greiðara en áður. Við tryggjum einnig að bestu verðin verða ávalt í boði í verslunum Intersport og því vænlegast að versla þar. Auðvitað verður netverslunin enn til staðar þar sem boðið er upp á heimsendingar. Einnig eru ekki alveg allar vörurnar sem við bjóðum upp á fáanlegar í Intersport svo auðvitað verður enn hægt að leita til okkar beint.

Við hvetjum þig til að kíkja við í Intersport í Lindunum og sjá úrvalið.

Síðast uppfært ( Föstudagur, 02. Apríl 2010 12:27 )
 
Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

max_ot_einkakennsla

Erling mun bjóða upp á MAX-OT kennslu í nokkrar vikur. Í þessu mun ég leiðbeina þér hvernig skal gera upphitun rétt, rétt beiting í æfingum og hvernig bestum árangri er náð slysalaust. Athugið að ég er ekki einkaþjálfari að mennt, heldur MAX-OT sérfræðingur, og má því leiðbeina fyrir hönd AST. Ég get gefið þér punkta um mataræði og matarprógram fyrir vöðvauppbyggingu. Matarprógram fáum við frá viðurkenndum einkaþjálfurum. Ég mun leiðbeina einstaklingum eða 3 saman í hóp og verð á mann er kr. 4.500,-

Í kaupbæti fylgja 4 MAX-OT DVD diskar með sem innihalda ítarlega kennslu með Jeff Willet að andvirði kr. 3.996,-

Þjálfun mun fara fram í hreyfingu og fær viðskiptavinur eina fría viku í kynningu frá Hreyfingu á meðan þessu stendur. Svo er það viðskiptavinurinn sem ákveður hvert hann fer og heldur æfingum áfram. Athugið að þetta er ekki nauðsynlegur áfangi í MAX-OT, en sannarlega hjálpar beita þér rétt á æfingum og ná ótrúlega miklum árangri.

Hægt er að bóka tíma hjá Erling í netfangi erling(at)progress.is og í síma 699-6665

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 24. Mars 2010 22:47 )
 

Ný sending kominn í hús

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Okkur er ánægja að tilkynna að ný sending er kominn í hús. Advanced próteinið og Muscle XGF seldust upp á fáeinum dögum og er komið aftur. Einnig fengum við kolvetnablönduna DGC sem hefur fengið frábærar viðtökur á Íslandi.
 

Lífsstílsmeistarinn næstu helgi

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Progress.is - AST, er einn aðal styrktaraðili að Þrekmótaröðinni líkt og í fyrra, nema nú heitir mótaröðin Intersport Þrekmótaröðin. Fyrsta mótið verður næstu helgi, 13.mars í Íþróttahöllinni í Reykjanesbæ. Það er okkur mikill heiður að standa með Intersport Þrekmótaröðinni, sem er sennilega ein erfiðasta keppnismótaröð sem haldin er á Íslandi, enda krefst þar styrks, þols, þreks og snerpu.

Við hvetjum þá sem ekki ætla að keppa til að láta sjá sig og verða vitni að gríðarlega spennandi og skemmtilegri keppni. Allar nánari upplýsingar má finna á www.threkmot.is.

Af þessu tilefni mun í vikunni verða settur sérstakur Þrekmóta-tilboðspakki á netverslunina, fylgist með.

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 09. Mars 2010 22:29 )
 
Síða 1 af 3