Þú ert að skoða: Forsíða Progress Starfsmenn

Progress.is - AST fæðubótarefni - MAX-OT

Karfan þín

Karfan þín er tóm (Hún hefur verið tæmd eða of langur tími er liðinn.)

Starfsmenn

Erling Valur Ingason
Ég hef rosalega gaman að hjálpa öðru fólki að ná langt í lífinu. Að kenna og upplýsa fólk er mín víma. Ég er menntaður sem Margmiðlunarsérfræðingur og hef unnið í auglýsingagerð og vefsmíði í mörg ár. Síðasta ár hef ég lagt mjög mikinn metnað þegar kemur að heilsu og hreyfingu. Ég er í Hreyfingu 5 daga vikunar og er að notast á við MAX-OT 12 vikna planið sem ég fer eftir. Árangurinn er ótrúlegur. Þá er ég ekki bara að tala um minn persónulega árangur, heldur allra þá sem ég hef rétt þetta plan og útskýrt fyrir. Fólk fær algjörlega nýja sýn "að mæta í ræktina" eins og ég gerði. Það eina sem þarf er að vera með opinn huga þegar maður byrjar á MAX-OT. Þetta er enginn heilaþvottur eða trú sem er verið að ýta upp á þig, þetta er bara betri leið til að ná meiri árangri og gera hlutina rétt.

Ég bjó í Virginia Beach í 3 ár þegar ég var að mennta mig í upplýsingatæknifræði og þar lærði ég mikið hvað það skiptir miklu máli að hreyfa sig reglulega. Í hamborgaraveldinu/megrunarveldinu er alltaf dökkur slagur á milli góðs og ills. Þegar maður kemur inn sem útlendingur og sér þennan slag, nær maður að gera sér grein fyrir mikilvægi heilbrigs lífernis. Ég varð meira vakandi fyrir innihaldi og magn af "vondum efnum" Þótt ótrúlega hljómi þá vita Bandaríkjamenn miklu meira um innihald matvara heldur við Íslendingarnir. Við erum alltaf með þá trú að við séum vernduð af okkar ríkisstjórn og ekkert vont skuli gerast þegar kemur að óhollu innihaldi. Ég hét sjálfum mér að byrja lífstíl sem ég lifi nú og mér hefur aldrei liðið betur. Það er enginn stærðfræði á bakvið þetta. Ég tek vítamin á hverjum degi, drekk prótínshake eftir æfingar og elda sjálfur minn mat sjálfur því unninn/skyndimatur mun aldrei og þá meina ég aldrei hjálpa þér. Þessir litlu hlutir gera allt þegar kemur að því að breyta um lífstíl.

Ég vona að ég geti orðið þér að liði þegar kemur af MAX-OT og AST. Ég hef svo mikla trú á hreinleika AST og árangur MAX-OT sem gaf okkur Ómari tækifæri á að vera talsmenn AST á Íslandi og stofna okkar fyrirtæki.

Ómar Ómar Ágústsson
Ég hef lengi vel verið ötull áhugamaður um líkamsrækt og heilbrigðan lífstíl, og sá áhugi eykst daglega. Ég er menntaður sem rafeindavirki og vinn sem slíkur hjá Sense í Kópavogi. Ég hef í tæp 12 ár verið með TFA (Tími fyrir aðgerðir), sem í dag er fyrirtæki á sviði viðburðahalds og umboðsvinnu í tónlist, og hef með því öðlast gríðarlega mikla reynslu á skipulagningu, markaðssetningu og samskiptum (sem er að nýtast furðu vel fyrir Progress ehf). Nú vinn ég að því ásamt úrvalsliði einstaklinga að koma á fót árlegri Þrekmótaröð (www.threkmot.is), sem er stigakeppni fjögurra þrek-keppna; Lífsstíls-Meistarinn, CrossFit-Leikar, BootCamp-Keppnin og Þrekmeistarinn.

Ég byrjaði fyrst að stunda líkamsrækt af alvöru fyrir um 6 árum síðan. Grunnur minn er fyrst og fremst byggður upp á bókinni "The New Encyclopedia of Modern Bodybuilding" eftir meistara Arnold Schwarzenegger og svo strax í kjölfarið tileinkaði ég mér 12 vikna MAX-OT prógrammið frá AST sem var mér algjör hugljómun. Árangur minn á MAX-OT var gríðarlega mikill og ég hlóð á mig vöðvamassa og styrk á mjög stuttum tíma sem ég hef viðhaldið alla tíð síðan.

Síðastliðin þjrú ár hef ég svo æft í BootCamp ásamt því að taka auka lyftingaræfingar af og til. Síðustu ár hef ég svo tekið þátt í ýmsum þrekraunum, m.a. Laugavegs-Ultramaraþoninu, nokkrum Þrekmeistarakeppnum, einhverjum þríþrautum, víðavangs og götuhlaupum, sjósundi, Lífsstílsmeitaranum, Bootcamp Keppninni, Cross-Fit Leikunum o.fl. Nýlega lauk ég einnig þjálfaraprófi í Bootcamp og þjálfararéttindum í TRX æfingum. Ég hef gríðarlega gaman af því að stýra þjálfun og aðstoða einstaklinga við að ná hámarks árangri og er því mjög þakklátur fyrir að geta miðlað hágæða vörum og fróðleik frá AST-Sport Science í þeim tilgangi.