Þú ert að skoða: Forsíða

Progress.is - AST fæðubótarefni - MAX-OT

Karfan þín

Karfan þín er tóm (Hún hefur verið tæmd eða of langur tími er liðinn.)

Lítil prótein stækka mest !

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

VP2-group

Vegna mikils framboðs á fæðubótarefnum og misvísandi upplýsinga telja margir að almennt sé ekki mikill munur á ódýru próteindufti eða dýru. Margir söluaðilar svífast einskis og markaðssetja ódýra vöru sem hágæða vöru og meiraðsegja villa til um uppruna vörunnar til að ná betur til íslenskra viðskiptavina.

Þótt ekki sé samnefnari á smásöluverði og gæðum er það þó staðreynd að vandað prótein er mun dýrara í framleiðslu en lítið unnið prótein og framleiðendur sem eru leiðandi á markaðinum eyða auk þess umtalsverðum fjármunum í rannsóknir og vöruþróun.

Prótein er krítískt næringarefni sem gegnir lykilhlutverki fyrir sinar, liðböng og vöðvastyrk. Því fljótvirkara sem próteinið er í að næra og styðja endurbata og vaxtarferlið á þessum krítísku hlekkjum, því eymslaminni og jafnframt sterkari, aflmeiri og þéttari vöðvavöxt muntu ná að byggja upp. Auk þess eru burðir þínir til vöðvavaxtar og styrkaukningar aðeins eins góðir og næringin sem þú sérð líkamanum fyrir. Fæðir þú honum sæmilega gott prótein munt þú aðeins uppskera sæmilega góðan árangur. Þetta er ekki valkostur, þetta er vísindaleg staðreynd!

AST voru fyrstir allra til að koma með mysuprótein á markaðinn fyrir íþróttafólk (1992) og allir aðrir hafa fylgt í kjölfarið. Á þeim tíma var almennt talið að eggjaprótein og mikið magn af ýmsum fitusýrum væru besta næringin með fæðubótarefnum, en rannsóknir AST sýndu fram á yfirburði mysupróteins umfram annað. Allt frá þeim tíma hafa þeir uppfært mysupróteinið stöðugt, bætt vinnsluaðferðirnar, endurbætt formúluna og gert ógrynni rannsókna og tilrauna með vöruna. Gríðarlega miklar rannsóknir AST hafa einmitt sýnt fram á það að með því að kaldhreinsa og brjóta niður próteinhlekkina með sérhæfðum aðferðum fá þeir mun hreinni og einangraða prótín og mysu-peptíð. Það tryggir ekki aðeins skilvirkari upptöku heldur einnig hæstu mögulegu varðveislu níturs (köfnunarefna).

VP2 próteinið frá AST er gramm fyrir gramm, sterkasta próteinið á markaðinum. Raunin er sú að ótal vísindalegar rannsóknir sýna fram á að VP2 er með yfirburðar eiginleika til vöðvavaxtar. Þetta eru engar markaðssetningar ýkjur, þetta eru vísindalegar niðurstöður. Ef þú ert í einhverjum vafa um yfirburði VP2, kallaðu þá eftir rannsóknarniðurstöðum frá samkeppnisaðilum sem sanna annað, en þú munt ekki fá þær niðurstöður. AST hefur rannsóknir sem þeir vitna í, sem sýna fram á allt að 1250% meiri vöðvafrumuvöxt en úr öðrum próteinum, það jafngildir 12x meiri vöðvavöxtur!

Prótein er ekki bara prótein. Ekki fjárfesta dýrmætum tíma þínum, metnaði og orku í árangursríkar æfingar ef þú ætlar svo að spara á mikilvægasta fæðubótarefninu sem líkaminn kallar eftir og rýra möguleika þína til vöðvauppbyggingar. Prófaðu og þú munt sannfærast.

Smelltu hérna til að skoða úrvalið og bragðtegundir

Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 03. Júní 2010 18:58 )